Útskrift

Klukkan

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Eniga meniga... okkur vantar dósapeninga!!!

22. október 2009 klukkan 22:03

Jæja, þá erum við looooksins komin með okkar eigin útskriftarferðareikning!!! :)

Þess vegna langar okkur að biðja ykkur sem hafið verið að safna dósunum að leggja peninginn inn á þennan reikning og setja smá skýringu með;

Reikningsnr: 0311-13-300317
kt: 550185-0599

Tökum líka á móti frjálsum framlögum!!!! ;)

Hilsen
Arna, Rannveig og Sigurdís

Hjúkkur í HÍ

Hjúkrunarvörusalan okkar

15. október 2009 klukkan 12:34
Hjúkrunarvörusala !!

Hér kemur planið næstu vikurnar í hjúkrunarvörusölunni, við erum búin að reyna að hafa þetta eftir ykkar óskum en það voru mjög margir sem vildu vera í Hafnafirði þannig að ekki fengu allir það sem þeir vildu.

Enn vantar á vikuna 9. -13. Nóvember og viljum við minna á að þeir sem ekki taka sér viku í hjúkrunarvörusölunni fá þar af leiðandi ekki ágóðann af henni.

Planið er þannig að farið er á 3 – 4 staði í hverri viku. Hjúkrunarheimilin, LSH Hringbraut aðra vikuna og Fossvogi hina vikuna. Búið er að auglýsa söluna í Fossvogi og Hringbraut í hádeginu á föstudögum, hjúkrunarheimilunum þurfið þið að ráðstafa sjálf, þá tímanum og hvaða dag og hafa samband við hvert hjúkrunarheimili vikuna áður og fá leyfi til að koma. Svo er auðvitað alltaf leyfilegt að vera í rauðu sófunum í Eirbergi eins og þið viljið.

Brýnum við fyrir fólki að hafa samband við hjúkrunarheimilin snemma og því fyrr því betra.

Vaktaplan Víðines og LSH Fossvogi 19. -23. Okt = Rannveig og Margrét Huld

Hrafnista Hfj. St. Jósefs og LSH Hringbraut 2. – 6. Nóv = Margrét Malena og Arna Garðars

Sunnuhlíð, Sóltún og LSH Fossvogi 26. – 30. Okt = Amalía og Sólrún

Vífilstaðir og LSH Hringbraut 9. – 13. Nóv =

Grund, Eir og LSH Fossvogi 16. – 20. Nóv = Birna, Kristín Halla og Helga Vala

Ef einhverjar upplýsingar vantar þá er hægt að hafa samband við:

Íris Björk = 6905566 Harpa Þöll = 8673105 Kolla = 6167897
Hjúkkur í HÍ

LESTU MIG!

02. október 2009 klukkan 19:53

Þetta er sjöunda tilraunin sem ég geri til að pósta þessu hérna inná... Yell



Sala á hjúkrunarvörum á hjúkrunar- og elliheimili

 

Staður                                                                          Vika

Droplaugastaðir                                                 28. sept – 2. okt

Sólvangur  &  Skógarbær                                      5. – 9. okt

Hrafnista Hafnarfirði & Hrafnista Reykjavík            12. – 16. okt

St. Jósefspítali & Víðines                                    19. – 23. okt

Grund  & Eir                                                      26. – 30. okt

Sunnuhlíð & Sóltún                                              2. – 6. nóv

Vífilstaðir                                                           9. – 13. nóv

                       

Hver og einn hópur velur eina viku þar sem hann fer á þessa tvo staði ásamt því að vera annaðhvort á Hringbraut eða Fossvoginum á föstudeginum. Næstkomandi föstudag verður salan á Hringbraut, þ.e 2 okt, og eftir viku í Fossvoginum. Þar sem við höfum bara einn posa til þess að fara með er gott að þeir hópar sem eiga að fara á staði í sömu viku verði búnir að tala sig saman um daga til þess að fara á, t.d. einn hópurinn fer á mánudegi og hinn á fimmtudegi. Gott er að það séu á milli 3-5 sem fara á hvern stað, hvort sem það er að hengja upp auglýsingu eða selja. Vikuna áður en að þið farið á staðinn verðið þið að vera búin að fara á staðinn og hengja upp auglýsingar. Einnig verðið þið að vera búin að hringja í hjúkurnarforstjórann til þess að athuga hvort að við megum selja á ákveðnum tíma og hvort að einhver dagur henti sérstaklega vel.

 

Þið verðið síðan í sambandi við einhvern úr nefndinni til þess að nálgast hjúkrunarvörudótið og posana.

Ef einhver vill bæta einhverju við endilega látið í ykkur heyra..

Kv. Kolla, Harpa Þöll, Íris Björk, Jónsi, Manda, Magga Ingólfs og Sigrún Halldórsd.

Hjúkkur í HÍ

Könnun

Hefur þú áhuga á að taka þátt í fjáröflun fyrir útskriftarferð og koma með ?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

áhugavert