Útskrift

Klukkan

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Ég var að googla..

24. nóvember 2008 klukkan 15:07

...og rakst á þessa skemmtilegu bloggfærslu. Einhverjir ykkar þekkja kanski bloggarann: http://gudnye.blogcentral.is/blog/2004/11/15/nokkrar-hjukrunargreiningar-handa-ykkur/ Ég allavega stal þessu af henni, mér fannst það svo viðeigandi... allavega við mig:
 
"Mér hefur tekist að skella þremur hjúkrunargreiningum sem mér finnst eiga einstaklega vel við mig þessa dagana.  Unnið er skipulega að meðferðum við þessum greiningum.

 

Félagsleg einangrun:  Einstaklingur er einmanna, hefur þörf fyrir eða löngun til samskipta, en er ófær um það.

Greiningarþættir:   Upptekinn af eigin hugsunum.  Endurtekur tilgangslausar athafnir.  Uppfillir ekki væntingar annarra.

Einstaklingur fer allt of lítið út á meðal fólks vegna annríkis. Einstaklingur er alltaf að vinna verkefni og reyna að finna greinar á netinu.  Fólk væntir þess að einstaklingur láti sjá sig við ákveðin tilefni, skili ákveðnum verkefnum og standi sig vel í námi en einstaklingur á erfitt með að standa undir slíkum kröfum.

Skert geta til heimilishalds:   Vangeta til að sjá sjálfur um nánasta umhverfi, þannig að það sé öruggt og stuðli að vexti og þroska.

Greiningarþættir:     Heimilisfólk kveðst eiga erfitt með að sjá um heimili, þannig að það sé þægilegt.  Heimilisfólk leitar hjálpar við heimilishald.  Umhverfi í óreiðu.  Eldhúsáhöld, fatnaður eða sængurfatnaður eru óhrein eða ekki til staðar, matarleifar eða úrgangur.

Það er ekki búið að vaska upp í nokkra daga, það þarf að fara að setja í þvottavél og taka til.  Vegna mikils álags í skóla er erfitt að sjá um þessa þætti auk verkefnavinnu í námi.

Ónóg þekking:   Haldgóðar upplýsingar um ákveðið efni skortir eða vantar á.

Greiningarþættir:  Tjáir sig um vandamálið.  Leiðbeiningum ekki fylgt nákvæmlega.  Óviðeigandi eða ýkt hegðun t.d. móðursjúkur, í uppnámi, sljór. Fer lítið út á við.  Lélegt minni.  Upplýsingar misskildar.  Lítill námsáhugi.

Ég tjái mig hér með um vandamálið. Ef ég hefði fylgt leiðbeiningum með öll námskeiðin sem ég er í nákvæmlega væri ég ekki í þessum vandræðum núna.  Ég hef tekið mín móðursýkisköst, verið í uppnámi og núna er ég bara sljó.  Ég er ekki að muna allt sem ég er að lesa og á það til að misskilja efnið. Lítill námsáhugi á bara við stundum, því ég vil alveg læra en nenni enganvegin að vera með bókina fyrir framan mig öllum stundum.

Þessar hjúkrunargreiningar eru viðurkenndar greiningar skráðar í skráningu hjúkrunar, sem er einskonar biblía hjúkrunarfræðinga þegar kemur að skráningu hjúkrunar.  Allir greiningarþættir sem nefdir eru réttir og viðurkenndir í þeirri bók   Njótið...."

Gangi ykkur svo vel í verkefnagerð eða prófundirbúningi
Kv. Þórunn

Hjúkkur í HÍ

Próflokapartí...

12. nóvember 2008 klukkan 10:53
Jæja kæru hjúkkulingar,

ég vil bara þakka kærlega fyrir æðislega leika á föstudaginn síðasta. Stemningin var þvílík að slíkt hefur varla sést áður!!! Gott að sem flestir gátu slett allrækilega úr klaufunum svona rétt áður en mega próflestur byrjar. Hann Gunni kom með þá brjáluðu hugmynd að við gætum haldið í góða og gamla hefð og hist á Ölveri og slakað á eftir erfiðan próflestur með því að taka svona eins og nokkur gömul og góð lög.. hver veit nema Geirný klæði sig upp í sama sparigalla og í fyrra og Eva taki fleiri kínverja í flugvél?!?!

Spurning um að hittast á Ölver milli 20-21 föstudaginn 12. desember?

Hvað segið þið um það??

Próflestrarkveðjur,

Kolla
Hjúkkur í HÍ

Fyrirpartý í Eskihlíðinni

06. nóvember 2008 klukkan 22:37
Jæja kæru hjúkkur!
Ég ætla að halda smá fyrirpartý heima hjá mér um 17:30 á morgun. Endilega kíkið við og hitið aðeins upp fyrir leikanna með okkur!
Hlakka til að sjá ykkur!
Kveðja Margrét Huld
Hjúkkur í HÍ

Kusakus!

03. nóvember 2008 klukkan 12:50

Jæja bekkjarfélagar góðir..

Hvernig væri að hafa eitt ærlegt og gott fyrirprófadjamm??
Aðeins og skvettast og liðka okkur til áður en við gerumst kandidatar í legusár, gyllinæð og hárlos ?




Viskusamleg kveðja,
Harpus Maximus

Hjúkkur í HÍ

Könnun

Hefur þú áhuga á að taka þátt í fjáröflun fyrir útskriftarferð og koma með ?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

áhugavert